Þýtt úr Alateen Talk, vol 43, nr 4. Fyrir nokkrum árum var ég orðin alveg ráðalaus varðandi heimilisaðstæður mínar. Ég er einkabarn og bjó heima hjá mömmu minni og pabba. Mér leið eins og heimilið væri fangelsi. Foreldrar mínir töluðu sjaldan saman og þegar þeir gerðu það var það aðeins til að skiptast á móðgunum eða standa saman gegn mér. …
Raunveruleg hjálp
Alateen hefur hjálpað mér mikið. Ég hef mætt á fundi í þrjá mánuði. Vinkona mín sagði mér frá þessum fundum og ég ákvað að kíkja. Vinkona mín sagði að Alateen hefði hjálpað sér mikið, núna þegar ég hef sjálf farið á fundi skil ég af hverju. Foreldrar mínir skildu. Ég hitti pabba minn eiginlega aldrei af því að hann var …
Að ná að aftengja sig þegar foreldrar rífast
Foreldrar mínir rifust nánast á hverjum degi þegar ég var lítill. Ég var hræddur við pabba af því að hann drakk. Ég vissi aldrei hvað hann myndi gera við mömmu. Ég fékk á tilfinninguna að hann myndi berja hana eða jafnvel enn verra en það, drepa hana. Ég var ungur, svo að ég hafði ekki hugmynd um hvað var …
Viljum fá að heyra af ykkar reynslu
Vantar meira efni á vefinn Hefur þú ekki sögu að segja? Okkur bráðvantar fleiri reynslusögu krakka á vefinn. Skrifið um það sem ykkur langar varðandi reynsluna af drykkju annarra í ykkar lífi. Það þarf ekki að vera langt. Má vera ljóð eða teiknimyndasögur. Ekki hafa áhyggjur af stafsetningu, við lögum hana áður en framlag ykkar er sett á vefinn. Munið að það er …
Í Alateen lærði ég að alkhólismi er sjúkdómur
Úr Forum Júlí 2008 Fram til sjö ára aldurs fannst mér að líf mitt væri dásamlegt. Ég bjó hjá móður minni, frænku og afa, átti marga vini og fékk góðar einkunnir. Ég lifði áhyggjulausu lífi þar til móðir mín sá hann aftur. Hann var martröð lífs míns – hann var stjúpfaðir minn. Hann átti við drykkjuvandamál að stríða, hinn svokallaða …
Úr reiði í þolinmæði
Forum September 1993 Áður en ég kom í Alateen lokaði ég allar tilfinningar inni. Ég var reið og ég hafði aðeins einn tilgang í lífinu, kenna öðrum um. Ég gat ekki sætt mig við nokkurn skapaðan hlut. Ég neitði öllu sem ég gerði af mér. Ég fann ekki til sektarkenndar en var full af biturleik. Ég hafði bara enga stjórn …
Gefandi þjónusta
Reynslusaga trúnaðarkonu í Alateen Á Al-Anon fundum hafði ég oft heyrt tilkynningar frá Alateen um að það sárvantaði fleira trúnaðarfólk. Það hvarflaði ekki að mér að ég gæti sinnt þessu 12. spors starfi. Ég taldi mér trú um að til að gerast trúnaðarmanneskja í Alateen yrði maður að hafa alist upp við mjög mikla drykkju og mér fannst ég ekki …