Dagleg sjálfsrannsókn

Dagleg reikningskil – Mín daglega sjálfsrannsókn

10. sporið: ,,Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist,
viðurkenndum við það undanbragðalaust.“

Spurningar: Hugsanlegar lausnir:
Missti ég stjórn á skapi mínu? Guð gefi mér æðruleysi
Stjórnaðist ég af eigingirni í dag? Spor 6, 7, 8 og 9
Gerði ég lítið úr öðrum í dag? Umburðarlyndi gagnvart öðrum
Bað ég æðri mátt um að hjálpa mér þegar ég þurfti á því að halda? Slepptu tökunum og leyfðu guði
Viðurkenndi ég það undanbragðalaust þegar ég hafði rangt fyrir mér? …kjark til að breyta því sem ég get breytt…
Hafði ég áhyggjur, brást ég illa við eða var í fúlu skapi? Slepptu tökunum og leyfðu guði
Gagnrýndi ég aðra? Lifðu og leyfðu öðrum að lifa
Sýndi ég virðingarleysi og reif kjaft? Guð gefi mér visku og vit..
Gleymdi ég því að alkóhólismi er fjölskyldusjúkdómur sem getur valdið óútreiknanlegri hegðun? Fyrsta sporið;…guð gefi mér vit til að greina þar á milli
Leyfði ég mér að vera í sjálfvorkunn og píslarvætti? Allir eiga við vandamál að stríða, sameinuð getum við tekist á við þau, fundirnir hjálpa!
Kenndi ég öðrum um mína eigin hegðun í dag? Hversu mikilvægt er það?
Tókst mér að bæta einhvern af mínum brestum í dag? … kjark til að breyta því sem ég get breytt..
Upplifði ég gremju í dag? Þriðja sporið; Höfum það einfalt

Hvaða tæki bataleiðarinnar er ég að nýta mér til að takast á við eftirfarandi skagerðareinkenni?
Skapið, gremjuna, ótta, gagnrýni á aðra, kenna öðrum um, sjálfsvorkunn, frestun, áhyggjur, geta ekki fyrirgefið, rífa kjaft, viðurkenna þegar ég hef rangt fyrir mér, eigingirni, fresta hlutunum, stjórnsemi…..(bættu inn þínum eigin skapgerðareinkennum)

Nokkrar hugmyndir bataleiðarinnar:
Gera eitt í einu, dæma ekki aðra, sýna virðingu, sýna umhyggju, að biðja æðri mátt um hjálp, leggja sig fram um að skilja alkóhólisma sem sjúkdóm, nýta sér slagorðin og æðruleysisbænina, lesa Al-Anon og Alateen lesefni þegar hugsanirnar eru komnar í flækju, tala við trúnaðarmanninn sinn, fara á fund, hlusta og læra, sleppa tökunum, sýna þægilegt viðmót og svo margt, margt fleira.


Byggt á S-6 Daily Checklist of Myself og reynslu og styrk íslenskra Al-Anon félaga
Birt með góðfúslegu leyfi Al-Anon Inc.
© Al-Anon Family Group Headquarters, Inc 1984. All Rights Reserved.

Öll réttindi áskilin. Þessa vefsíðu má ekki afrita með neinum hætti, vista inn í kerfi þar sem unnt er að sækja hann eða senda áfram, á nokkru formi eða með nokkurri aðferð (rafrænni, vélrænni, með ljósritun, upptöku eða á annan hátt), án þess að geta heimilda www.al-anon.is.

Al-Anon samtökin á Íslandi©