Bóksala |
Bóksalan á skrifstofunni að Sundaborg 5 í Reykjavík er opin fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar milli kl. 16 og 18. Athugið að eingöngu er tekið við greiðslukortum (ekki reiðufé) þegar bækur er keyptar á skrifstofu. Þetta er gert til að auðvelda vinnu við bókhald.
|
Lesefni er líka hægt að panta á eftirfarandi slóð: https://goo.gl/forms/qRyVoFFlCIg5vIGC3 |
Netpantanir eru afgreiddar aðra hverja viku og sendar út á föstudegi. |
Ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna má senda fyrirspurnir á al-anon@al-anon.is. |
|
ATHUGIÐ: Bankareikningsnúmer bóksölu er 0101-05-267926 (gildir frá 9. maí 2020) |
 |
Ferlið er svohljóðandi:
-
Kaupandi fyllir út eyðublað og pöntunin verður til.
-
Al-anon fer yfir pöntun og sendir til baka yfirfarna pöntun og verð með sendingarkostnaði.
-
Kaupandi millifærir inn á samtökin inn á 0101-05-267926, kt.: 680978 0429 - skýring "bækur" og sendir kvittun á boksala.alanon@gmail.com
-
Al-anon sendir bækur næsta sendingardag. |
- uppfært 28. ágúst 2020 |
|
Um Al-Anon lesefnið |
Allt frá stofnun 1951 hafa Al-Anon fjölskyldudeildirnar gefið út meira en 100 bækur og bæklinga í einum tilgangi: að hjálpa fjölskyldum og vinum að ná bata frá áhrifunum af drykkju annarrar manneskju. Bækur og bæklingar geta styrkt bata okkar en það kemur ekki í staðinn fyrir þá hjálp sem fæst á Al-Anon fundum og þann bata sem gerist þegar bataleiðinni í heild er beitt. Skilningur og virkni Al-Anon lesefnis er mest þegar það er notað í sameiningu með öðrum verkfærum bataleiðarinnar, s.s. fundarsókn. Lesefni er selt á mörgum Al-Anon fundum.
|
Við vekjum líka athygli á Hlekknum, veftímariti Al-Anon á Íslandi. Þar er að finna reynslusögur sem félagar hafa sent inn. Allir sem reynt hafa Al-Anon bataleiðina geta sent inn sögu sína og þannig deilt með okkur hinum reynslu sinni, styrk og von. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að Hlekknum og fá senda tilkynningu í hvert sinn sem nýju efni er bætt við. Sendu okkur þína reynslusögu á al-anon@al-anon.is með yfirskriftinni "Reynslusaga".
|
|
Ráðstefnusamþykkt lesefni |
Á fundum og í þjónustu Al-Anon samtakanna er eingöngu stuðst við ráðstefnusamþykkt lesefni sem er merkt með merki samtakanna og textanum ,,ráðstefnusamþykkt lesefni" (CAL). Þetta þýðir að fyrir útgáfu hefur efnið farið í gegnum ákveðið ferli innan samtakanna þar sem það hefur verið skoðað með tilliti til erfðavenja og meginreglna Al-Anon. Þetta efni er skrifað af Al-Anon félögum, samþykkt af Al-Anon félögum, er fyrir Al-Anon félaga og er skrifað frá sjónarhorni Al-Anon samtakanna.
|
Á bernskuárum Al-Anon samtakanna áður en Alþjóðaþjónusturáðstefnan (WSC) var stofnuð skrifuðu og dreifðu margar deildir sínu eigin lesefni. Þetta efni var jafn misjafnt og þeir sem skrifuðu. Sumt endurspeglaði sjónarmið Al-Anon, annað ekki og á árunum 1962 til 1965 var samþykkt á Alþjóðaþjónusturáðstefnu Al-Anon að eingöngu yrði notast við ráðstefnusamþykkt lesefni. Þetta styrkir einingu samtakanna og að boðskapurinn verði skýr og sjálfum sér samkvæmur.
|
|
Af hverju getum við ekki notað hvaða lesefni sem er á fundum? |
Al-Anon og Alateen ráðstefnusamþykkt lesefni, Hlekkurinn (vefrit Al-Anon á Íslandi) og The Forum (tímarit samtakanna á heimsvísu) er það sem mælst er til að sé notað á Al‑Anon og Alateen fundum. Okkur finnst lesefnið ásamt reynslu félaganna það besta fyrir nýliðann svo hann þrói með sér jákvæða sýn á fjölskyldusjúkdóminn alkóhólisma. Al-Anon og Alateen lesefni er samþykkt af Alþjóðaráðstefnu okkar þar sem það endurspeglar bataleiðina bæði í hugmynd og framkvæmd. Persónuleg reynsla sem endurspeglast í The Forum og Hlekknum hjálpar okkur að skilja hvernig öðrum hefur tekist að tileinka sér bataleiðina.
|
Það er mjög misjafnt hvort eða hvernig ,,utanaðkomandi" lesefni lýsir boðskap Al-Anon. Notkun á því á fundum getur leitt til klofnings og haft áhrif á einingu deildanna og það getur sérstaklega ruglað nýliðann í ríminu. Með því að nota eingöngu ráðstefnusamþykkt Al-Anon lesefni á fundum tryggjum við einingu og framtíð samtakanna. Al-Anon félagar geta gengið að því vísu að hvar í heiminum sem þeir fara á fund verði ómengaður boðskapur Al-Anon um von og hjálp til staðar.
|
Þegar við þroskumst í Al-Anon eru minni líkur á að við verðum rugluð og yfirkomin af utanaðkomandi lesefni. Félagar eru þó hvattir til að lesa allt sem þeir finna um málefnið í sínum eigin tíma. Hinsvegar eru fundirnir of mikilvægir til að eyða tímanum í umræður um bækur, myndir, bæklinga eða eitthvað annað sem ekki tengist Al-Anon, hversu mikið sem slíkt hefur nýst einu eða mörgum okkar.
|
Að nota eingöngu ráðstefnusamþykkt lesefni er í samræmi við fyrstu erfðavenjuna:
Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins byggist á einingu samtakanna.
|
Allar nánari upplýsingar um ráðstefnusamþykkt lesefni þar á meðal um hvernig félagar geti lagt sitt af mörkum til útgáfu lesefnis, er að finna í bæklingnum Hvers vegna ráðstefnusamþykkt lesefni (P-53). Ef Al-Anon þríhyrninginn er ekki á lesefninu, þá er það ekki samþykkt lesefni.
|
Rafrænir Al-Anon fundir þurfa að fá leyfi til þess að nota ráðstefnusamþykkt lesefni á opnum vefsíðum. Leiðarljós fyrir gerð útdrátta og endurprentunar er fáanlegt frá Alþjóðaþjónustuskrifstofunni (WSO). |
|