Leiðbeiningar til að tengjast ZOOM fjarfundum
ANDROID
- Opnaðu „Play Store“ appið með Android tækinu þínu
- Finndu og sæktu „Zoom Cloud Meetings“ í Android tækið þitt
- Opnaðu „Zoom Cloud Meetings“
- Ýttu á bláa flipann þar sem stendur „Join a Meeting“
- Sláðu inn talnakóðann sem þú getur fundið í Fundaskrá (merkt „hlekkur á fundarboð“) eða sem Al-Anon félagar hafa útvegað þér
iOS (iPhone, iPad)
- Opnaðu „App Store“ með iOS tækinu þínu
- Finndu og sæktu „Zoom Cloud Meetings“ í iOS tækið þitt
- Opnaðu „Zoom Cloud Meetings“
- Ýttu á bláa flipann þar sem stendur „Join a Meeting“
- Sláðu inn talnakóðann sem þú getur fundið í Fundaskrá (merkt „hlekkur á fundarboð“)
PC TÖLVUR
- Finndu slóð á fjarfund í Fundaskrá (merkt „hlekkur á fundarboð“) eða notaðu slóð sem Alanon félagar hafa útvegað þér
- Afritaðu slóðina (draga bláan borða yfir slóðina og smella á hægri músarhnapp til að gera „copy“)
- Opnaðu nýjan flipa í netvafranum þínum, límdu slóðina þar (paste) og ýttu á „Enter“
- Eftir að ýtt hafi verið á Enter þá byrjar Zoom forritið að niðurhalast og keyra inn á PC vélina. Eftir þetta getur þú farið á fjarfund með Meeting ID sem er í Fundaskrá eða þér var úthlutað
Sækja leiðbeiningar sem PDF skjal
FUNDASKRÁ – ÝMSAR SKÝRINGAR
Hver deild heldur fund á sama tíma og sama stað í hverri viku, allan ársins hring. Flestar deildir eru með einn fund á viku. Algengast er að fundir standi yfir í 60 mín. Frávik og breytingar eru auglýstar á vefsíðunni. Fundirnir eru fyrir alla Al-Anon/Alateen félaga og væntanlega félaga af báðum kynjum. Sé fundarform öðruvísi er það tekið fram í fundarskránni.
Héðinsgata 1-3, Reykjavík: Í anddyri hússins hangir listi sem sýnir hvar fundirnir eru í húsinu. Öll fundarherbergi eru númeruð.
Fundarform útskýrð
- Þemafundir: Félagar deila reynslu sem tengist tilteknu þema, venjulega hugtaki eða tilfinningu, sem er ákveðið í upphafi fundar.
- Rúllandi sporafundir: Reynslusporin notuð sem umræðuefni á hverjum fundi.
- Sporafundur: Eitthvert af Reynslusporunum tólf haft sem umræðuefni.
- Erfðavenjufundur: Einhver af Erfðavenjunum tólf notuð sem umræðuefni.
- Þjónustuhugtakafundur: Eitthvert af Þjónustuhugtökunum tólf haft sem umræðuefni.
- Slagorðafundur: Eitthvert tiltekið slagorð haft sem umræðuefni.
- OPINN FUNDUR: Opinn fyrir allan almenning, fagfólk og fjölmiðlafólk.
- Nýliðafundir: Reyndir félagar bjóða væntanlega félaga velkomna og kynna samtökin fyrir þeim. Nýliðafundir eru yfirleitt 30 mín. að lengd en geta verið lengri.
- Kvennafundir/karlafundir eru eingöngu fyrir konur/karla.
= Aðgengi fyrir hjólastóla |