Hver er tilgangurinn með reynslusporunum tólf?
Reynslusporin tólf eru vegvísir í átt til betra lífs þegar við lærum að nýta okkur þau til þess að byggja okkur upp á ný. Áhrifin af drykkju annarrar manneskju hefur sett mark á líf okkar.
Nauðsynlegt er að íhuga sporin gaumgæfilega til þess að ná framförum í Al-Anon. Grundvallaratriði sporanna eru algild, þau geta allir hagnýtt sér, hvaða trú sem þeir aðhyllast. Í Al-Anon kappkostum við að fá stöðugt dýpri skilning á reynslusporunum og biðjum um visku til þess að geta nýtt þau í lífi okkar.
Reynslusporin 12
- Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
- Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
- Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
- Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.
- Við játuðum misgjörðir okkar fyrir guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst.
- Við vorum þess albúin að láta guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.
- Við báðum guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
- Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.
- Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.
- Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust.
- Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.
- Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.
Lesefni um sporin tólf:
P-5 Leiðsögn til bata: fjórða spor Al-Anon – uppgjör
B-22 Al-Anon leiðin
B-8 Al-Anons´s Twelve Steps and Twelve Traditions
P-4 Alcoholism, The Family Disease
Uppfært 23. nóvember 2013