Hver er tilgangurinn með reynslusporunum tólf? |
Reynslusporin tólf eru vegvísir í átt til betra lífs þegar við lærum að nýta okkur þau til þess að byggja okkur upp á ný. Áhrifin af drykkju annarrar manneskju hefur sett mark á líf okkar.
Nauðsynlegt er að íhuga sporin gaumgæfilega til þess að ná framförum í
Al-Anon. Grundvallaratriði sporanna eru algild, þau geta allir hagnýtt sér, hvaða trú sem þeir aðhyllast. Í Al-Anon kappkostum við að fá stöðugt dýpri skilning á reynslusporunum og biðjum um visku til þess að geta nýtt þau í lífi okkar. |
Reynslusporin 12 |
1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi. |
2. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju. |
3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum. |
4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar. |
5. Við játuðum misgjörðir okkar fyrir guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst. |
6. Við vorum þess albúin að láta guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina. |
7. Við báðum guð í auðmýkt að losa okkur við brestina. |
8. Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær. |
9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan. |
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust. |
11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann. |
12. Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi. |
|
Lesefni um sporin tólf:
P-5 Leiðsögn til bata: fjórða spor Al-Anon - uppgjör B-22 Al-Anon leiðin
B-8 Al-Anons´s Twelve Steps and Twelve Traditions P-4 Alcoholism, The Family Disease |