Alateen hefur hjálpað mér mikið. Ég hef mætt á fundi í þrjá mánuði. Vinkona mín sagði mér frá þessum fundum og ég ákvað að kíkja. Vinkona mín sagði að Alateen hefði hjálpað sér mikið, núna þegar ég hef sjálf farið á fundi skil ég af hverju. Foreldrar mínir skildu. Ég hitti pabba minn eiginlega aldrei af því að hann var …
Að ná að aftengja sig þegar foreldrar rífast
Foreldrar mínir rifust nánast á hverjum degi þegar ég var lítill. Ég var hræddur við pabba af því að hann drakk. Ég vissi aldrei hvað hann myndi gera við mömmu. Ég fékk á tilfinninguna að hann myndi berja hana eða jafnvel enn verra en það, drepa hana. Ég var ungur, svo að ég hafði ekki hugmynd um hvað var …
Viljum fá að heyra af ykkar reynslu
Vantar meira efni á vefinn Hefur þú ekki sögu að segja? Okkur bráðvantar fleiri reynslusögu krakka á vefinn. Skrifið um það sem ykkur langar varðandi reynsluna af drykkju annarra í ykkar lífi. Það þarf ekki að vera langt. Má vera ljóð eða teiknimyndasögur. Ekki hafa áhyggjur af stafsetningu, við lögum hana áður en framlag ykkar er sett á vefinn. Munið að það er …
Slepptu tökunum og leyfðu Guði
Þýtt úr Alateen Talks Back on Slogans, bls. 9. Hlekkurinn, 2. tbl. 9. árg. 1994 Hvað er svona mikilvægt við að hafa rétt fyrir sér? Hvers vegna lendi ég í rifrildi við foreldri mitt sem er alkóhólisti, eða þann sem er ekki alkóhólisti, og verð æstur þegar ég veit að allt sem ég kem til með að segja gerir aðstæðurnar …
Einn dagur í einu
Þýtt úr Alateen Talks Back on Slogans, bls. 14 Hlekkurinn, 2. tbl. 9. árg. 1994 Saga mín er öðruvísi að því leyti að vandamálin byrjuðu eftir að faðir minn hætti að drekka. Mér var ekki sagt frá drykkjuvandamáli hans fyrr en ég var tíu ára. Ég hafði þó alltaf vitað að fjölskyldan mín væri eitthvað ,,öðruvísi“ því að móðir mín …
2. sporið: Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur andlega heil að nýju.
Ég trúi því að það sé eitthvað mér æðra og að þaðan geti ég fengið innblástur til að láta mér þykja vænt um aðra. Ég hef þroskast nógu mikið til að líta á minn æðri mátt sem vin sem ég get talað við og þessi vinátta hjálpar mér til að létta á hjarta mínu við hann. Ég get slakað á …
1. sporið: Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn áfengi og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi
Reynslusaga Í bernsku var mér kennt að bera virðingu fyrir eldra fólki, sérstaklega foreldrum mínum. Þegar drykkja föður míns var orðin að vandamáli missti ég alla virðingu fyrir honum. Þetta kom mér úr jafnvægi því að það braut í bága við allt sem mér hafði verið kennt. Ég varð óskaplega óhamingjusöm af því að mér þótti mjög vænt …
Að halda áfram
Mig grunar að ein ástæðan fyrir því að ég held í vonbrigði er sú að ég get ekki leyft mér að vera minna en fullkomin. Ég vil ekki að annað fólk sé ófullkomið heldur. Ég festist í væntingum mínum. Sem fullkomnunarsinni og þakklátur Al-Anon meðlimur hef ég lært eitt atriði eða tvö um fyrirgefninguna. Að fyrirgefa öðrum og sjálfri mér losar …
Al-Anon, þetta er málið
Úr nýjum bæklingi Al-Anon var síðasta hálmstráið fyrir sum okkar. Við þjáðumst, fundum fyrir örvæntingu og sum okkar höfðu misst vonina. Við mættum á okkar fyrsta fund og við héldum áfram að mæta. Sársaukinn sem við þekktum svo vel hvarf. Við vissum að þjáningin var tengd drykkju einhvers og að hennar vegna var okkur ekki unnt að lifa eðlilegu lífi. …
Al-Anon – Þetta er málið
Frá Útgáfunefnd Nýr bæklingur Kæru félagarBæklingurinn Al-Anon spoken her, P53 hefur nú verið þýddur og gefinn út á íslensku og heitir Al-Anon, þetta er málið Í þessum bæklingi eru upplýsingar og svör við ýmsum surningum um samtöin, deildirnar og erfðavenjurnar. Bæklingurinn er til á skrifstofunni og kostar 500 krónur. Einnig hefur einblöðungurinn Hefur þú áhyggjur af drykkju einhvers ? Al-Anon …
