Tækifæri til þess að virkja sköpunargáfuna!

Okkur vantar myndefni og hugleiðingar ykkar   Það væri frábært að fá myndir (teiknaðar, málaðar, tölvugerðar) til þess að gera síðuna ykkar flottari. Ef þið sendið ljósmyndir þá mega ekki vera nein þekkjanleg andlit því við verðum að passa upp á nafnleyndina. Myndir á tölvutæku er best að hafa í .jpeg, .png, .gif eða .bmp. Athugið að við birtum ekki …

Morgunlaugin lögð niður.

Kæru Al-Anon félagar!   Ákveðið hefur verið að leggja niður laugardagsdeildina á Akureyri og hefur hún nú þegar hætt starfsemi.    

Lifðu og leyfðu öðrum að lifa

Homeward Bound   Þetta slagorð minnir okkur á að lifa hvern dag á innihaldsríkan hátt með því að beina sjónum okkar að okkur sjálfum – og bera ávallt virðingu fyrir því að annað fólk hefur þeirra eigin skoðanir, æðri mátt og ábyrgð á eigin gerðum.     Áður birt með leyfi AFG Inc. í Hlekknum í júní 1995    

Góðir hlutir gerast hægt

Homeward Bound Spenna og vanhugsuð viðbrögð leiddu aðeins til vandræða.  Að slaka á gerir okkur rólegri og verður til þess að við verðum afkastameiri og gagnlegri.      Áður birt með leyfi AFG Inc. í Hlekknum í júní 1995  

Alateen breytti því hvernig ég lifi og hvernig ég hugsa

Living Today in Alateen 3. febrúar Í dag er ég þakklát fyrir Alateen. Áður en ég fór að sækja fundi, var ég mjög feimin og hrædd við fólk. Ég velti fyrir mér hvað þeim myndi finnast um mig ef ég talaði við þau og segði þeim hvernig mér liði. Ég reyndi að vera alveg eins og allir aðrir en það …

Ég ræð hvernig ég bregst við

Living Today in Alateen 6. janúar Áður varð ég oft mjög reið/ur við vini mína. Ef einhver sagði eitthvað sem mér mislíkaði þá var ég með fýlusvip við hann eða hana allan þann dag. Ég sagði engum yfir hverju ég hafði reiðst  og enginn vissi fyrir víst við hvern ég reiddist.          Eftir að ég byrjaði í Alateen fór ég …

Ég ræð hver minn æðri máttur er

Living Today in Alateen 21. janúar Í þriðja sporinu segir: að fela vilja sinn  og líf sitt í umsjá guðs eins og við skiljum hann. Ég átti í mestu vandræðum með þetta, þar sem ég hafði engan guð!          Ég talaði um þetta við trúnaðarmann minn og hann sagði mér að búa mér til eitthvað sem ég gæti skilið  og …

Félagar í Alateen ræða um æðri mátt:

Living Today in Alateen 16. janúar  – Áður hugsaði ég mér guð eins og álfadís. Hann uppfyllti óskir, gerði suma hamingjusama  og sinnti öðrum ekki. Núna veit ég að það er ekki þannig. Hann er alltaf tilbúinn að hlusta á bænir mínar og svör hans eru já, nei, eða bíddu. Með því að læra að treysta og æfa mig í …

Tilfinning um frið og ró

Living Today in Alateen ? dagur Eitt af því sem ég tók með mér heim af Alateen fundunum var friður. Tilfinningin um að allt verði í lagi þrátt fyrir að hlutirnir gerist ekki einmitt í dag. Deildin mín leystist upp og ég tapaði þessari tilfinngu um frið og æðruleysi um tíma. Undanfarið hef ég verið að kljást við sjálfan mig og núna …

Besta próf sem ég hef fallið á!

Þýtt úr Alateen Talk, vol 43, nr 4. Fyrir nokkrum árum var ég orðin alveg ráðalaus varðandi heimilisaðstæður mínar. Ég er einkabarn og bjó heima hjá mömmu minni og pabba. Mér leið eins og heimilið væri fangelsi. Foreldrar mínir töluðu sjaldan saman og þegar þeir gerðu það var það aðeins til að skiptast á móðgunum eða standa saman gegn mér. …