Afmælisfundur Al-Anon á Íslandi

Grafarvogskirkju 21. nóv kl 20 Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 21. nóvember í Grafarvogskirkju.  Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir. Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi deila reynslu, styrk og von.  Þá verður tónlistarflutningur og boðið uppá veitingar að fundi loknum.  Þarna er kærkomið …

Svæðisfundur Norð-austursvæðis

Strandgötu 21, sunnud. 21. nóv kl 13 Svæðisfundur Norðaustursvæðis verður haldinn sunnudaginn 21. nóvember 2010. Fundurinn verður haldinn í AA húsinu Strandgötu 21 á Akureyri frá 13:00 – 18:00.   kveðja, Svæðisfulltrúi Norð-austursvæðis  

21. Landsþjónusturáðstefna Al-Anon á Íslandi, 23. okt – 24. okt.

Þjónusta – hvað er það? Landsþjónusturáðstefnan í ár verður haldin í Safnaðarheimili Grensáskirkju dagana 23. – 24. október.   Ráðstefnugjaldið er 5.500 kr. og er athygli vakin á að deildir sem senda deildarfulltrúa sína sem áheyrnarfulltrúa á Landsþjónusturáðstefnuna greiða ráðstefnugjald þeirra.    Allir Al-Anon félagar eru velkomnir en þeir sem koma á ráðstefnuna greiða ráðstefnugjaldið við innganginn.   Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Al-Anon skrifstofunnar sími: 551 …

Sumarlokun á skrifstofunni

vegna sumarleyfa Ágætu félagar, Skrifstofan verður lokuð vegna sumarleyfa frá 13. júlí til 9. ágúst.   Ef bráðvantar bóksölu er hægt að panta lesefni hér á heimasíðunni. Gleðilegt sumar!  

Sumarlokanir Jónshúss

Tilkynning frá deildinni í Kaupmannahöfn sem hefur fundað í Jónshúsi Vegna sumarlokunar Jónshús frá 5. júlí til 22. ágúst flytjast fundir yfir í Sankt Pauls kirke við Gernersgade 33.     

Fundir í Reykjanesbæ falla niður í sumar

Tilkynning frá sunnudagsdeild í Reykjanesbæ Fundirnir á sunnudögum kl 21:00 að Flugvallabraut 740, Reykjanesbæ falla niður í sumar og byrja vonandi aftur í lok sumars eða í haust. Tilkynning verður send út þegar þeir byrja aftur.  

Praktískar upplýsingar fyrir alla

Upplýsingar um reikningsnúmer og kennitölu samtakanna er að finna undir Al-Anon flipanum Skrifstofa.   Bestu kveðjur frá vefstjóra     Upplýsingar um reikninga samtakanna Almennur reikningur samtakanna er:  0101-26-021674, kt. 680978-0429   Deildir vinsamlegast láti nafn deildar koma fram í skýringu ef greitt er í gegnum netbanka, þar sem engin listi er til á skrifstofunni yfir kennitölur deilda eða reikningsnúmer …