21. Landsþjónusturáðstefna Al-Anon á Íslandi, 23. okt – 24. okt.

Þjónusta – hvað er það?
Landsþjónusturáðstefnan í ár verður haldin í Safnaðarheimili Grensáskirkju dagana 23. – 24. október.
 
Ráðstefnugjaldið er 5.500 kr. og er athygli vakin á að deildir sem senda deildarfulltrúa sína sem áheyrnarfulltrúa á Landsþjónusturáðstefnuna greiða ráðstefnugjald þeirra.
  
Allir Al-Anon félagar eru velkomnir en þeir sem koma á ráðstefnuna greiða ráðstefnugjaldið við innganginn.
 
Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Al-Anon skrifstofunnar sími: 551 9282 eða með tölvupósti á netfangið al-anon@al-anon.is fyrir 30. september.
Dagskrá 21. Landsþjónusturáðstefnu Al-Anon á Íslandi 2010
                       Safnaðarheimili Grensáskirkju 23 -24 okt. 2010
 
Þjónusta – Hvað er það?
 
Laugardagur:
 
9.30     Skráning landsþjónustufulltrúa
 
10.00   Ráðstefnan sett með Æðruleysisbæninni
            Tólf þjónustuhugtök Al-Anon lesin
            Ábyrðaryfirlýsingarnar lesnar
 
Fundarstjóri og fundarritari tilnefndir – Kynning á atkvæðagreiðslu
 
10.20    Fulltrúar kynna sig
 
10.30    Skýrsla 20. Landsþjónusturáðstefnu lögð fram til samþykktar
 
10.40    Dagskrá ráðstefnunnar kynnt, Erfðavenjur Al-Anon lesnar, Hlutverk Landsþjónusturáðstefnu, Hlutverk landsþjónustufulltrúa, Hugleiðing um yfirskrift ráðstefnunnar
 
11.00   Hlé
 
11.15    Skýrslur nefnda – Aðalþjónustunefnd, Alateennefnd, Almannatengslanefnd, Ráðstefnunefnd      
 
12.30   Hádegisverðarhlé
 
13.15   Skýrslur frh..   Skrifstofunefnd, Útgáfunefnd, Skýrsla starfsmanns skrifstofu
13.45   Fyrirspurnir/svör
           
14.00   Skýrsla alþjóðafulltrúa
           
15.15   Kaffihlé
 
15.30   Hvernig vinnum við trúnaðarsambandið í Al-Anon.
 
17.00   Æðruleysisbænin/verkalok fyrri dags
 
—————–
Sunnudagur – Húsið opnar 9.15
  
9.30     Reikningar lagðir fram, Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram, Fyrirspurnir
 
10.00   Kaffihlé
 
10.10   Skýrslur svæðisfulltrúa frá öllum svæðum
           
10.30   Tilnefning alþjóðafulltrúa og formanna fastanefnda, þeir kynna sig
            Kjör alþjóðafulltrúa
            Kjör formanna fastanefnda   
            Kjör skoðunarmanna reikninga
 
11.00   Landsþjónustufulltrúi skýrir frá reynslu sinni af að starfa í Aðalþjónustunefnd
            Tilnefning landsþjónustufulltrúa til setu í Aðalþjónustunefnd
            Kjör landsþjónustufulltrúa í Aðalþjónustunefnd
 
11.20   Kynning á tillögum sem liggja fyrir ráðstefnunni til samþykktar
 
12.20   Hádegisverðarhlé
 
13.15   Al-Anon fundur
           
14.25   Tillögur lagðar fram, Umræður, kosning samþykktir
 
15.30   Kaffihlé
 
15.45   Framhald umræðu og kosning um tillögur
 
16.30   Önnur mál       
 
17.00   Ráðstefnu slitið með Æðruleysisbæninni         
 
 
Með kærleikskveðju,
Al-Anon Ráðstefnunefnd