Er Alateen trúnaðarmennska eitthvað fyrir þig?
Alateen, sem er hluti af fjölskyldudeildum Al-Anon, eru samtök ungs fólks sem hefur orðið fyrir áhrifum af drykkju ættingja eða náins vinar. Hver Alateen deild þarf á virkum, fullorðnum Al-Anon félaga að halda sem þjónar deildinni sem trúnaðarmanneskja. Eftirfarandi spurningar geta hjálpað þér að ákveða hvort þú vilt taka að þér trúnaðarmennsku í Alateen.
- Ertu að leita að þjónustu sem er gefandi, nærandi og spennandi?
- Hefur einhvern tímann hvarflað að þér að hjálpa Alateen?
- Gerir þú þér grein fyrir því að trúnaðarmennska í Alateen er 12. spors tækifæri fyrir þig?
- Er Alateen deild eða Alateen nefnd í næsta nágrenni þínu?
- Hefur þú leitt hugann til unglinga sem vilja hjálp en fá enga af því að engin Alateen deild er ekki til staðar?
- Getur þú skuldbundið þig til að vera á Alateen fundi einu sinni í viku í 8 vikur til 6 mánuði?
- Ertu fús til að funda með Alateen félögum til að deila reynslu, styrk og von með þeim, hlæja og stundum gráta?
- Getur þú leyft Alateen félögum að stjórna sínum eigin fundi án þess að vera með óþarfa stjórnun og afskiptasemi?
- Getur þú hlustað með opnum huga og gefið Alateen félögum svigrúm til að tjá sig?
- Getur þú virt nafnleynd Alateen félaga með því að ræða ekki tjáningu þeirra við foreldra þeirra eða aðra?
- Getur þú sagt ,,nei” við óviðeigandi hegðun, útskýrt afstöðu þína og sýnt þeim áfram kærleika?
- Geturðu bent á tæki bataleiðarinnar (slagorð, spor, erfðavenjur, bækur og bæklinga) án þess að gefa ráð?
- Þekkirðu muninn á leiðsögn og yfirráðum, ertu fús til að læra?
- Hefur hvarflað að þér að þig langaði til að verða trúnaðarmaður í Alateen ef þú aðeins vissir hvernig þú ættir að fara að því?
Ef þú ert að minnsta kosti 21 árs, hefur verið virkur félagi í Al-Anon í að minnsta kosti 2 ár og ert fús til að deila batanum þá gæti Alateen trúnaðarmennska verið fyrir þig. Ef þú hefur áhuga talaðu þá við deildarfulltrúann þinn, Alateen trúnaðarmann, svæðisfulltrúa eða þjónustuskrifstofu Al-Anon. Reynslusaga félaga um þjónustu í Alateen.
Alateen trúnaðarmaður:
- Þarf að vera orðin/orðinn 21 árs
- Þarf að hafa verið í Al-Anon í að minnsta kosti 2 ár
- Þarf að vera virkur félagi í Al-Anon og sækja Al-Anon fundi.
- Þarf hafa hreint sakarvottorð. Alateen trúnaðarmanneskjan þarf annað hvort að afhenda formanni Alateen nefndar afrit af sakarvottorði eða fela formanninum undirritað umboð til að sækja vottorðið á viðeigandi stofnun.
- Má ekki hafa fengið á sig kæru vegna ofbeldis, fíkniefna eða kynferðisbrots.
Hlutverk trúnaðarmanna í Alateen felst í því að:
- Halda utan um Alateen fundi 3 mánuði í senn (6 vikur að lágmarki) og vera til staðar fyrir Alateen félaga
- Að sækja fundi Alateen nefndar og hitta þannig aðra Alateen trúnaðarmenn og ræða Alateen starfið.
- Að vera með þjónustu-trúnaðarmann (Service sponsor) sem hægt er að leita til varðandi þessa 12. spors þjónustu.
- Að gera einu tvisvar á ári Sjálfsrannsókn trúnaðarmannsins (Sponsor Inventory)
- Að muna að Alateen trúnaðarmaður er hvorki kennari né æðri Alateen félögunum og veitir ekki ráðleggingar. Alateen trúnaðarmaður deilir einungis reynslu sinni, styrk og vonum.
- Að muna að það er ekki hlutverk trúnaðarmanns að sinna uppeldi eða deila á ákvarðanir foreldra Alateen félaganna.
Byggt á S-27, Alateen Sponsorship: Is It For You? og P-29, A Guide for Alateen Sponsors og skipulagi þjónustu á Íslandi.