Svæðisfundur Suðvestursvæðis, Akranesi

Laugardaginn 8. nóv. kl. 13:00   Svæðisfundur Suðvestursvæðis verður haldinn þann 8. nóvember 2014 kl. 13:00 að Suðurgötu 108 Akranesi.   Dagskrá fundarins: Fundur settur með Æðruleysisbæn. Fundarmenn kynna sig. Fundarritari kosinn. Lesið upp úr Einn dagur í einu; Erfðavenjur og Þjónustuhugtök lesin. Hlutverk Svæðisfundar kynnt. Fundargerð síðasta Svæðisfundar lesin. Varalandsþjónustufulltrúar kosnir. Önnur mál. Deildarfulltrúar minntir á að miðla niðurstöðum …

Árlegur afmælisfundur Al-Anon 16. nóv. 2014

Sunnudag kl. 20, Grafarvogskirkju Kæru félagar,   Samtökin voru stofnuð þann 18. nóvember 1972 og verða því 42 ára á þessu ári. Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 16. nóvember í Grafarvogskirkju.   Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir.  Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi …

Landsþjónusturáðstefnu Al-Anon á Íslandi frestað

  Reykjavík, 20. september 2014   Til allra deilda og landsþjónustufulltrúa   Á fundi aðalþjónustunefndar sem haldinn var 13. september 2014 var ákveðið að fresta Landsþjónusturáðstefnu Al-Anon á Íslandi þar til í febrúar á næsta ári, en ráðstefnuna átti að halda í október í ár. Er það m.a. gert í ljósi þeirrar fjárhagsstöðu sem er hjá samtökunum.   Engar tillögur …

Nánar um vinnusmiðjuna á laugardaginn

Héðinsgötu 1-3, kl. 13:30   Eins og kom fram í síðustu frétt, þá verður haldin vinnusmiðja laugardaginn 13. september 2014 kl. 13:30 til 17:00 að Héðinsgötu 1-3.   Ráðgert er að vera með happdrætti á vinnusmiðjunni með nokkrum vel völdum bókavinningum, aðeins 500 kr. miðinn.   Dagskrá vinnusmiðjunnar er áætluð eftifarandi: 13.30–13:50 Farið yfir fjármál og uppbyggingu samtakanna. 13:50-14:05 Kynning á …

Vinnusmiðja 13. september 2014

Héðinsgötu 1-3   Eins og fram hefur komið hefur skrifstofunni nú verið lokað vegna fjárskorts, þar til lausn hefur fundist á rekstrarvanda samtakanna. Framlög frá deildum duga ekki lengur til að halda úti skrifstofu. Því er mikilvægt að ráðast að rót vandans og greina í hverju hann er fólginn.   Ákveðið hefur verið að halda vinnusmiðju þann 13. september frá …

Sunnudagsdeild Selfossi farin í frí

  Sunnudagsdeild Al-Anon á Selfossi verður í fríi frá 1. júní til september. Dagsetning verður auglýst síðar.   Með Al-Anon sumarkveðju Sunnudagsdeildin á Selfossi 

Svæðisfundur Norðaustursvæðis vor 2014

Akureyri 28. maí kl. 18   Svæðisfundur Norðaustursvæðis verður haldinn 28. maí kl 18:00 að Strandgötu 21, Akureyri.         DAGSKRÁ: Farið yfir hlutverk Landsþjónustufulltrúa. Kosning fulltrúa fyrir Landsþjónusturáðstefnu. Skýrsla svæðisfulltrúa. Skýrsla svæðisgjaldkera. Tillögur fyrir landsþjónustráðstefnu. Frjálsar umræður um málefni deilda/svæðis.   Al-Anon fundur hjá miðvikudagsdeild kl 20:00. Öllum velkomið að taka þátt.   Keðja Svæðisfulltrúi Norðaustursvæðis

Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis vor 2014

Hallveigarstíg 25. maí kl. 14   Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis verður haldinn 25. maí kl. 14:00 í safnaðarheimili Aðventista við Hallveigarstíg í Reykjavík.   DAGSKRÁ 14:00 Fundur settur með æðruleysisbæninni Fundarstjóri og fundarritari kosnir14:05 Fundarmenn kynna sig: nafn, deild, staðsetning deildar og þjónustuhlutverk14:30 Erfðavenjur lesnar14:35 Fundargerð síðasta fundar lesin / umræður15:15 Lesið upp úr Einn dagur í einu í Al-Anon15:20 Þjónustuhugtökin lesin15:30 Umræður um tillögur deilda fyrir svæðið 16:00 Kaffipása …

Svæðisfundur Suðvestursvæðis vor 2014

Hafnarfirði 24. maí kl. 11   Sælir kæru deildarfulltrúar,   Nú er komið að vorsvæðisfundi suðvestursvæðis Al-Anon 2014. Hann verður haldinn að Kaplahrauni 1, Hafnarfirði laugrdaginn 24. maí kl. 11:00  Allir Al-Anon félagar eru velkomnir á svæðisfund.        DAGSKRÁ: Fundur settur með æðruleysisbæn Fundarmenn kynna sig Lesið upp úr „Einn dagur í einu í Alanon.“ Erfðavenjurnar og þjónustuhugtökin lesin. Fundargerð …

Ný deild á Egilsstöðum

  Búið er að stofna nýja deild á Egilsstöðum.   Fundir eru á þriðjudögum kl. 20 að Miðvangi 22 kjallara, Jónshúsi.   Með kveðju frá deildarfulltrúa