Árlegur afmælisfundur Al-Anon 16. nóv. 2014

Sunnudag kl. 20, Grafarvogskirkju
Kæru félagar,
 
Samtökin voru stofnuð þann 18. nóvember 1972 og verða því 42 ára á þessu ári. Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 16. nóvember í Grafarvogskirkju.
 
Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir.  Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi deila reynslu, styrk og von auk þess sem lifandi tónlistarflutningur verður í lok fundarins. Þarna er kærkomið tækifæri til að bjóða öðrum í fjölskyldunni eða vinum til að gleðjast með okkur, sem erum á bataleið Al-Anon.
 
Hefð hefur skapast fyrir því að hafa sameiginlegt kaffihlaðborð í lok fundarins þar sem Al-Anon koma sjálfir með eitthvað góðgæti til að leggja á borð. Félagar eru hvattir til að baka og leggja þannig sitt af mörkum svo við nærum ekki bara sálina heldur náum að næra líkamann líka.  Þeir, sem ná að baka, komi með góðgætið í Grafarvogskirkju klukkan hálf átta á sunnudagskvöldið.  Þetta er kjörið 12. spors starf.
 
Happdrættismiðar og bolir með slagorðum Al-Anon verða til sölu til styrktar samtökunum við innganginn og því gott að koma tímanlega. Kæru félagar, sýnum samstöðu og mætum á afmælisfundinn 16. nóvember.
 
Með þökk,
Almannatengslanefnd Al-Anon