Vegna Covid-19 veirunnar hefur aðalþjónustunefnd Al-Anon ákveðið að fresta Landsþjónusturáðstefnu og vinnusmiðju sem halda átti dagana 21. og 22. mars. Að öllu óbreyttu verður ráðstefnan og vinnusmiðjan haldin 19. og 20. september 2020. Ný tilkynning verður send út með haustinu.
Landsþjónusturáðstefna Al-Anon á Íslandi 2020
21. mars í Brautarholti, Reykjavík Kæru félagar Landsþjónusturáðstefna Al-Anon 2020 verður haldin laugardaginn 21. mars n.k. kl. 9:30 – 16:00 og vinnusmiðja verður í framhaldi ráðstefnunnar sunnudaginn 22. mars kl. 10:00 – 13:00 í Sjómannaheimilinu Örkinni Brautarholti 29 Reykjavík. Yfirskrift ráðstefnunnar og vinnusmiðjunnar í ár er: „Þjónustuhandbókin – hvernig starfar Al-Anon, hvert er hlutverk mitt?“ Tilgangur …
Afmælisfundur Al-Anon á Íslandi
Grafarvogskirkju 24. nóvember Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 24. nóvember kl. 20:00 í Grafarvogskirkju. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir. Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi deila reynslu, styrk og von. Lifandi tónlistarflutningur verður í lok fundarins. Þarna er kærkomið tækifæri …
Svæðisfundur Reykjavíkur haust 2019
9. október kl. 17 Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis verður haldinn 9. október 2019 kl. 17:00 í Sundaborg 5, Rvk. Dagskrá fundarins: Fundur settur með æðruleysisbæn Fundarmenn kynna sig Fundarritari kosinn Lesið upp úr Einn dagur í einu, erfðavenjur og þjónustuhugtök Hlutverk svæðisfundar kynnt Fundargerð síðasta svæðisfundar lesin Kosning landsþjónustufulltrúa (3) og varalandsþjónustufulltrúa (3 Önnur mál Tillögur til umfjöllunar á fundinum þurfa …
Svæðisfundur Suðvestursvæðis haust 2019
Hafnarfirði, 19. október Svæðisfundur Suðvestursvæðis verður haldinn 19. október 2019 kl. 12:00 að Suðurgötu 7, í Góðtemplarahúsinu Hafnarfirði. Ath! Hefðbundinn Al-Anon fundur hefst kl. 14:00. Allir Al-Anon félagar eru velkomnir á svæðisfundi. Dagskrá fundarins: Fundur settur með æðruleysisbæn Fundarmenn kynna sig Fundarritari kosinn Lesið upp úr Einn dagur í einu, erfðavenjur og þjónustuhugtök Hlutverk svæðisfundar kynnt Fundargerð …
Þjónustuhandbók Al-Anon uppfærð og lagfærð
Þjónustuhandbók Al-Anon á Íslandi hefur verið uppfærð og lagfærð. Athugið að uppfært eintak af þjónustuhandbók Al-Anon sem var gefið út í ágúst reyndist þurfa minniháttar lagfæringar. Nýtt lagfært eintak hefur verið sett á vefsíðuna. Handbókin er ókeypis og hægt að hala niður sem PDF skrá. Kveðja Al-Anon á Íslandi
Þjónustuhandbók Al-Anon á Íslandi 2019-2020
Þjónustuhandbók Al-Anon hefur verið uppfærð. Handbókin er ókeypis og hægt að hala niður PDF skrá, sjá hlekk Þjónustuhandbók hér til vinstri. Kveðja Al-Anon á Íslandi
Bóksalan fer í sumarfrí
Kæru félagar athugið! Netbóksalan ætlar í smá sumarfrí í sumar, síðasta afgreiðsla bóka sem pantaðar eru í gegnum pöntunarformið á heimasíðunni okkar verður afgreidd föstudaginn 14. júní. Bóksalan verður hinsvegar opin á skrifstofunni að Sundaborg 5, 6. júní og 4. júlí. Netpantanir verða síðan afgreiddar að nýju föstudaginn 23. ágúst og þá mun opna salan á skrifstofunni halda …
Svæðisfundur Suðvestursvæðis
Selfossi 28. maí Svæðisfundur Suðvestursvæðis verður haldinn 28. maí 2019 kl. 18:00 að Hrísholti 8, Selfossi. —————- ATH! Al-Anonfundur kl. 20:30 ————— Allir Al-Anon félagar eru velkomnir á Svæðisfund. Dagskrá fundarins: Fundur settur með æðruleysisbæn Fundarmenn kynna sig Fundarritari kosinn Lesið upp úr einn dagur í einu, Erfðavenjur og Þjónustuhugtök Hlutverk Svæðisfundar kynnt Fundargerð síðasta svæðisfundar …
VINNUSMIÐJA
Sunnudag 31. mar 2019 Kæru félagar. Vinnusmiðja um Leiðarljós Al-Anon verður haldin sunnudaginn 31. mars 2019 kl. 10:00- 13:00. Hún er liður í því að styrkja hugmyndafræði Al-Anon starfsins, tilgang þess sem andlegrar aðferðar til sjálfshjálpar og bata og einnig til að styrkja starfsemi deilda jafnt og einingu samtakanna í heild. Eftirfarandi er meðal umræðuefna: Hvernig …
