Vinnusmiðja um þjónustuhugtökin tólf 10. apríl 2016

Sjómannaheimilið, Brautarholti 29, kl. 11
 
Kæru félagar,
 
Vinnusmiðja um þjónustuhugtök Al-Anon verður haldin sunnudaginn 10. apríl n.k. í Sjómannaheimilinu Örkinni Brautarholti 29, Reykjavík frá kl. 11:00 til 15:00. Boðið verður upp á létt snarl í hádeginu.
 
Félagar úr Al-Anon munu deila reynslu sinni af þjónustuhugtökunum. Síðan verður skipt í umræðuhópa og rætt um hvernig þjónustuhugtökin geta nýst okkur í lífi og starfi. Æskilegt að alli hafi skrifblokk og penna meðferðis.
 
Húsið opnar kl: 10:30 og það eru allir velkomnir.
 
Þáttökugjald er ekkert en þakklætispotturinn verður á sínum stað.
 
Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta.
 
Með kveðju,
Ráðstefnunefnd og Útgáfunefnd