Vinnusmiðja „Nafnleyndin – hinn andlegi grundvöllur“

sunnudag 3. apríl í Reykjavík
 
VINNUSMIÐJA  Al-Anon 2022 verður haldin sunnudaginn 3. Apríl  kl. 10:00 – 13:00 í Sjómannaheimilinu Örkinni Brautarholti 29, Reykjavík.
 
Yfirskrift: ”Nafnleynd- hinn andlegi grundvöllur”.
 
Vinnusmiðjan er liður í því að efla vitund Al-Anon félaga um uppbyggingu og starf samtakanna, hlutverk nefnda, svæða og alþjóðafulltrúa og mikilvægi þess að taka að sér þjónustu fyrir samtökin. Í þjónustuhandbókinni segir um hlutverk deildarfulltrúa og varadeildarfulltrúa „eru mikilvægir hlekkir í viðhaldi, vexti og sameiningu Al-Anon um allan heim“. Þetta efni er kjörið til að styrkja deildar- og varadeildarfulltrúa sem og aðra félaga.
 
Eftirfarandi er meðal umræðuefna:
 
     Nafnleyndin- hinn andlegi grundvöllur

  1. Hvað felur nafnleynd í sér; á fundum, í einkalífi, í fjölmiðlum?
  2. Hvernig hjálpar nafnleyndin til við batann; þróa auðmýkt, traust, trú á æðri mátt?
  3. Hvað gerir deildin/ég ef nafnleyndar er ekki gætt og vart verður við slúður?
  4. Hvernig getum við notað erfðavenjuna um nafnleyndina í fjölskyldunni?

 
Í upphafi heyrum við reynslusögur nokkurra félaga. Síðan skipta þátttakendur sér í umræðuhópa og ræða ákveðin atriði. Að loknum umræðum í hópum kynna félagar úr hverjum hópi umræður hópsins.
 
Al-Anon félagar eru hvattir til að mæta á vinnusmiðjuna og leggja sitt af mörkum, bæði nýliðar og þeir sem hafa verið lengi í samtökunum, því reynsla allra er jafn mikilvæg.
 
Vinnusmiðjan er haldin í Sjómannaheimilinu Örkinni, Brautarholti 29 Reykjavík.
Ekki er innheimt þátttökugjald, en þakklætispotturinn verður á sínum stað. Boðið er uppá veitingar í kaffihléi um kl. 11:30. Gott er að hafa með sér skriffæri og pappír.
 
Kveðja,
Ráðstefnunefnd