Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis haust 2015

17. nóvember í Sundaborg 5
 
Ágætu deilda- og varadeildafulltrúar,
 
Vinsamlega lesið upp á næstu fundum því mikilvægt er að sem flestir félagar sjái sér fært að koma á svæðisfundinn.
 
Svæðisfundur Reykjavíkursvæðisins verður haldinn þann 17. nóvember 2015 kl. 17:30 til 19:00 í Sundaborg 5, 104 Reykjavík (gengið inn í austurenda hússins). Húsið opnar kl. 17:00 og verða veitingar á boðstólnum frá 17:00-17:30.
 
Allir félagar á Reykjavíkursvæðinu eru velkomnir á svæðisfundinn, en aðeins deildafulltrúar og varadeildafulltrúar hafa atkvæðisrétt (hver deild hefur eitt atkvæði). Kostnaður hvers þátttakanda er 1.200 kr.
 
Á svæðisfundinum hafa deildir tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir og tillögur (frá samviskufundum) sem verða ræddar og fundurinn ákveður hvort verða sendar áfram til Landsþjónusturáðstefnu 2016.
 
Á fundinum verður kosinn varasvæðisfulltrúi og landsþjónustufulltrúar fyrir Landsþjónusturáðstefnu 2016.
 
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Fundur settur með æðruleysisbæninni.
  • Fundarritari kosinn.
  • Fundarmenn kynna sig.
  • Lesnar 12 erfðavenjur
  • Lesin 12 þjónustuhugtök.
  • Hlutverk svæðisfunda.
  • Fundargerð síðasta fundar lesin.
  • Sagt frá Landsþjónusturáðstefnu 2015, og vinnusmiðju.
  • Reykjavíkursvæðið- Sameiginleg viska deilda á svæðinu.
  • Virkni og þátttaka í þjónustugeiranum.
  • Lesið um hlutverk svæðisfulltrúa og landsþjónustufulltrúa.
  • Kosning varasvæðisfulltrúa og landsþjónustufulltrúa.
  • Umræður um tillögur deilda fyrir svæðið.
  • Aðskilnaður, lesið úr “Einn dagur í einu, 29. maí”.
  • Tímasetning næsta fundar ákveðin.
  • Önnur mál.
  • Fundi slitið með æðruleysisbæninni.

 
Allir hjálpast að við frágang.
 
Með Al-Anon kveðju,
Svæðisfulltrúi