Haustfundur 2016
Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis verður haldinn 12. október 2016 kl. 17:00 – 18:00 í Sundaborg 5, Reykjavík, gengið inn í austurenda hússins.
Allir félagar á Reykjavíkursvæðinu eru velkomnir á svæðisfundinn, en aðeins deildafulltrúar og varadeildafulltrúar hafa atkvæðisrétt (hver deild hefur eitt atkvæði). Á svæðisfundinum hafa deildir tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir og tillögur (frá samviskufundum) sem verða ræddar og fundurinn ákveður hvort verða sendar áfram til Landsþjónusturáðstefnu vorið 2017. Á fundinum verður kosinn landsþjónustufulltrúi fyrir Landsþjónusturáðstefnuna.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Fundur settur með æðruleysisbæninni.
- Fundarritari kosinn.
- Fundarmenn kynna sig.
- Lesið upp úr “Einn dagur í einu í Al-Anon”, erfðavenjurnar og þjónustuhugtökin.
- Hlutverk svæðisfundar.
- Fundargerð síðasta svæðisfundar lesin.
- Svæðisfulltrúi fjallar um mál svæðisins.
- Skýrsla Landsþjónusturáðstefnu 2016 kynnt.
- Lesið um hlutverk svæðisfulltrúa og landsþjónustufulltrúa.
- Kosning landsþjónustufulltrúa á Landsþjónusturáðstefnu 2017.
- Útgáfumál, sagt frá þýðingu Paths to Recovery.
- Alþjóðafulltrúi kynnir ferð á Alþjóðaráðstefnuna 4. okt sl.
- Önnur mál.
- Tillögur svæðis fyrir Landsþjónusturáðstefnu.
- Dagsetning næsta fundar ákveðin.
- Fundi slitið með æðruleysisbæninni.
Með kveðju
Svæðisfulltrúi Reykjavíkursvæðis