Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis 2. júní 2012

Svæðisfundur vorsins hefur fengið stað og tíma, og verður haldinn í Neskirkju laugardaginn 2. júní 2012 frá kl. 11 til 17.
 
Á fundinum verður Landþjónusturáðstefnan 2012 kynnt fyrir félögum og kosnir þrír fulltrúar svæðisins á ráðstefnuna. Á fundinum verður einnig kjörinn varasvæðisfulltrúi. Svæðin þurfa að skila inn fyrirspurnum og tillögum frá deildum vegna Landsþjónusturáðstefnunnar fyrir 1. júlí næstkomandi og er svæðisfundurinn vettvangur svæðisins til að leggja fram tillögur og fyrirspurnir í þeim tilgangi.
 
Svæðisfulltrúi