Svæðisfundur Reykjavíkur

Haust 2017
 
Svæðisfundur Reykjavíkur verður haldinn 17. október 2017 kl. 17:00 – 18:30 að Sundaborg 5 (gengið inn frá austurenda).
 
Allir félagar á Reykjavíkursvæðinu eru velkomnir á svæðisfundinn en aðeins deildarfulltrúar og varadeildarfulltrúar hafa atkvæðisrétt (hver deild hefur eitt atkvæði).
 
Á svæðisfundinum hafa deildirnar tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir og tillögur frá samviskufundum. Þær verða ræddar og sendar áfram á Landsþjónusturáðstefnuna 2018.
 
Á fundinum verða kosnir landsþjónustufulltrúar og varasvæðisfulltrúi Reykjavíkursvæðis.
 

Dagskrá

  • Fundur settur með æðruleysisbæn.
  • Fundarritari kosinn.
  • Fundarmenn kynna sig.
  • Lesið upp úr “Einn dagur í einu í Al-Anon”, erfðavenjurnar og þjónustuhugtökin.
  • Lesið um Hlutverk Svæðisfundar.
  • Fundargerð síðasta svæðisfundar 25. apríl 2017 lesin.
  • Svæðisfulltrúi fjallar um mál svæðisins.
  • Lesið um hlutverk svæðisfulltrúa og Landsþjónustufulltrúa.
  • Kosning landsþjónustufulltrúa.
  • Kosning varasvæðisfulltrúa.
  • Önnur mál.
  • Tillögur Reykjavíkursvæðis fyrir Landsþjónusturáðstefnu 2018.
  • Dagsetning næsta fundar ákveðin.
  • Fundi slitið með æðruleysisbæninni. 

 
Kveðja,
Svæðisfulltrúi Reykjavíkur