Landsþjónusturáðstefna Al-Anon á Íslandi 2019

haldin 30. mars í Brautarholti, Reykjavík
 
Kæru félagar
 
Landsþjónusturáðstefna Al-Anon 2019 verður haldin laugardaginn 30. mars n.k. kl. 9:30 – 16:00 og vinnusmiðja verður í framhaldi ráðstefnunnar sunnudaginn 31. mars kl. 10:00 – 13:00 í Sjómannaheimilinu Örkinni, Brautarholti 29, Reykjavík.
 
Yfirskrift ráðstefnunnar og vinnusmiðjunnar í ár er:
 

„Leiðarljós AL-Anon“

 
Tilgangur ráðstefnunnar er að styrkja Al-Anon starfið í landinu. Hún er aðalfundur nefnda Al-Anon þar sem þær greina frá starfinu í landsþjónustu Al-Anon á undanförnu ári. Einnig eiga öll svæði þar kjörna fulltrúa sem greina frá starfi svæðanna og hafa atkvæðisrétt.
 
Ráðstefnan er stefnumótandi fyrir samtökin og hefur að leiðarljósi tólf erfðavenjur og tólf þjónustuhugtök Al-Anon.
 
Ráðstefnan er ekki opin en vinnusmiðjan daginn eftir, sunnudaginn 31. mars kl. 10:00 – 13:00 er opinn öllum félögum án endurgjalds. Vinnusmiðjan verður auglýst nánar síðar.
 
Með Al-Anon kveðju,
Ráðstefnunefnd