Landsþjónusturáðstefna Al-Anon á Íslandi 2018

Laugardaginn 10. mars í Reykjavík
 
Kæru félagar
 
Landsþjónusturáðstefna Al-Anon 2018 verður haldin laugardaginn 10. mars n.k. og vinnusmiðja verður í framhaldi ráðstefnunnar sunnudaginn 11. mars í í Sjómannaheimilinu Örkin Brautarholti 29 Reykjavík.
 
Yfirskrift ráðstefnunnar og vinnusmiðjunnar í ár er:
Nafnleyndin  – hinn andlegi grundvöllur
 
 
Tilgangur ráðstefnunnar er að styrkja Al-Anon starfið í landinu. Hún er aðalfundur nefnda Al-Anon þar sem þær greina frá starfinu í landsþjónustu Al-Anon á undanförnu ári. Einnig eiga öll svæði þar kjörna fulltrúa sem greina frá starfi svæðanna og hafa atkvæðisrétt.
 
Ráðstefnan er stefnumótandi fyrir samtökin og hefur að leiðarljósi tólf erfðavenjur og tólf þjónustuhugtök Al-Anon.
 
Ráðstefnan er ekki opin en vinnusmiðjan daginn eftir, sunnudaginn 11. mars kl. 10:00 – 13:00 er opinn öllum félögum án endurgjalds. Sjá nánari auglýsingu um vinnusmiðjuna.
 
Með Al-Anon kveðju,
ráðstefnunefnd