Gleymskudagurinn verður 19. mars í ár

Frá Almannatengslanefnd
Kæru deildir og félagar!
 
Í ár verður gleymskudagurinn haldinn þann 19.mars n.k.
 
Gleymskudagur er amerísk fyrirmynd þar sem Al-Anon félagar “gleyma” samþykktum bæklingum og lesefni á helstu opinberu stöðum í hverfi deildarinnar, s.s. eigin vinnustað, sundlaugum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum, skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, strætó, inn í bókum sem verið er að skila á bókasafnið o.fl. 
 
Félagar gætu keypt bæklinga eða lesefni og “gleymt” hér og þar eða nýtt eldra efni í það.  Mælst er til þess að deildir hafi bæklinga til reiðu fyrir félaga.
 
Eftirfarandi bæklingar henta vel til “gleymsku”:
–      Að aftengjast – að sleppa tökunum
–      Ólst þú upp við drykkjuvandamál?
–      Hefur þú áhyggjur af drykkju einhvers?
–      Tilgangur & tillögur
–      Staðreyndir um Alateen
–      Elskarðu alkóhólista?
–      Sjónarhorn Al-Anon
–      Dagurinn í dag
–      Fundaskrár
–      Þetta er Al-Anon
 
Al-Anon skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-13, Grandagarði 14, 3. hæð.  Þar er hægt að nálgast lesefni og frekari upplýsingar. 
Hægt er að senda pantanir á skrifstofuna í tölvupósti al-anon@al-anon.is og fá sent í póstkröfu.
 
Kær kveðja frá félögunum í almannatengslanefnd