Bréf frá Almannatengslanefnd
17. mars
Kæru Al-Anon deildir og félagar!
Í ár verður gleymskudagurinn haldinn þann 17.mars n.k.
Gleymskudagur er amerísk fyrirmynd þar sem Al-Anon félagar ,,gleyma” samþykktum bæklingum og lesefni á helstu opinberu stöðum í hverfi deildarinnar, s.s. eigin vinnustað, sundlaugum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum, skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, strætó eða inni í bókum sem verið er að skila á bókasafnið o.fl.
Félagar gætu keypt bæklinga eða lesefni og ,,gleymt” hér og þar eða nýtt eldra efni í það. Mælst er til þess að deildir hafi bæklinga til reiðu fyrir félaga.
Eftirfarandi bæklingar henta vel til ,,gleymsku”:
– Að aftengjast – að sleppa tökunum
– Hefur þú áhyggjur af drykkju einhvers?
– Tilgangur & tillögur
– Staðreyndir um Alateen
– Elskarðu alkóhólista?
– Sjónarhorn Al-Anon
– Dagurinn í dag
– Fundaskrár
– Þetta er Al-Anon
Al-Anon skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-13, Grandagarði 14, 3. hæð. Þar er hægt að nálgast lesefni og frekari upplýsingar.
Hægt er að senda pantanir á skrifstofuna í tölvupósti al-anon@al-anon.is og fá sent í póstkröfu.
Kær kveðja frá félögunum í almannatengslanefnd