24. október 2009
kl. 13:00 – 17:00 Opinn Al-Anon fundur kl. 17.15
Kæru félagar!
Svæðisfundur Norð-Austursvæðis verður haldinn laugardaginn 24. október næstkomandi. Fundarstaður er AA-húsið, Strandgötu 21 á Akureyri.
Fundartími er frá klukkan 13:00 – 17:10.
Opinn Al-Anon fundur verður í framhaldi af svæðisfundinum.
Allir félagar í Al-Anon samtökunum eru velkomnir en athugið að hver deild hefur aðeins eitt atkvæði í þeim kosningum sem fram munu fara. Deildarfulltrúi fer með atkvæðisrétt en annars varadeildarfulltrúi.
Góðir gestir frá Aðalþjónustunefnd samtakanna munu mæta á fundinn og gefa svör við almennum fyrirspurnum. Veitingar verða í boði en reynt verður að stilla kostnaði í hóf og skipta honum á milli deilda. Því er gott að vita fjölda þeirra sem mæta frá hverri deild ef hægt er.
Vinsamlega staðfestið komu ykkar með því að hringja í undirritaða eða senda tölvupóst sem fyrst. 856-5165 eða í maria@emax.is
Dagskrá fundarins er sem hér segir: (meira)
Dagskrá:
13:00 Fundur settur með æðruleysisbæninni og kynning fundargesta
(nafn, deild, þjónustuþátttaka).
13:15 Kjör ritara og fundarstjóra.
13:20 Kynning á svæðisstarfi og svæðisskipulagi. Fyrirspurnir og svör.
13:45 Deildarfulltrúar segja frá sinni deild í stuttu máli.
14:10 Kynning á starfi svæðis- og varasvæðisfulltrúa.
Kosning svæðis- og varasvæðisfulltrúa.
14:35 Landsþjónustufulltrúi kynnir reynslu sína af störfum í aðalþjónustunefnd.
14:45 Matarhlé í 30 mínútur. (Veitingar á staðnum í umsjón gestgjafa).
15:15 Hlutverk landsþjónustufulltrúa kynnt. Kosning 3 fulltrúa á næstu landsþjónusturáðstefnu.
15:45 Umræða um deildir á landsbyggðinni. Hvað er hægt að gera fyrir þessar deildir svo þær hætti ekki? Hugmyndasmiðja.
16:30 Önnur mál.
17:00 Ákveðið hvar næsti svæðisfundur skal haldinn og hvenær.
17:15 – 18:15 Opinn Al-Alon fundur!
Með fyrirvara um breytingar.