Kæru deildir og félagar!
AL-ANON samtökin voru formlega stofnuð í maí 1951 í New York af Lois sem var eiginkona Bill annars stofnanda AA-samtakanna og Anne B. og vill almannatengslanefnd Al-Anon vekja athygli á afmælisdegi Lois sem er 4. mars n.k. Að því tilefni verður haldinn alþjóðlegur „gleymskudagur.“
Gleymskudagur er amerísk fyrirmynd þar sem Al-Anon félagar „gleyma” samþykktum bæklingum og lesefni á helstu opinberu stöðum í hverfi deildarinnar, s.s. eigin vinnustað, sundlaugum, hárgreiðslustofum, líkamsræktarstöðvum, skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, strætó, inn í bókum sem verið er að skila á bókasafnið o.fl.
Félagar gætu keypt bæklinga eða lesefni og „gleymt“ hér og þar eða nýtt eldra efni í það. Mælst er til þess að deildir hafi bæklinga til reiðu fyrir félaga.
Eftirfarandi bæklingar henta vel til gleymsku:
- Að aftengjast – að sleppa tökunum
- Ólst þú upp við drykkjuvandamál?
- Hefur þú áhyggjur af drykkju einhvers?
- Tilgangur & tillögur
- Staðreyndir um Alateen
- Elskarðu alkóhólista?
- Sjónarhorn Al-Anon
- Dagurinn í dag
- Þetta er Al-Anon
Al-Anon skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-13, Grandagarði 14, 3. hæð. Þar er hægt að nálgast lesefni og frekari upplýsingar.
Hægt er að senda pantanir á skrifstofuna í tölvupósti al-anon@al-anon.is og fá sent í póstkröfu.
Kær kveðja frá félögunum í almannatengslanefnd