Afmælisfundur í Grafarvogskirkju

Opinn afmælis- og kynningarfundur AL-ANON samtakanna
15. nóvember 2009
Kæru félagar í Al-Anon.
Opinn afmælis- og kynningarfundur AL-ANON samtakanna verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember 2009. Fundurinn verður haldinn í Grafarvogskirkju kl 20:30 og er öllum opinn. Hér er tækifæri fyrir alla að kynna sér Al-Anon. Félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
AL-ANON samtökin voru stofnuð á Íslandi þann 18. nóvember árið 1972 og er félagsskapur ættingja og vina alkóhólista. AL-ANON samtökin hafa aðeins einn tilgang, að hjálpa aðstandendum alkóhólista.
 
Á fundinum munu þrír félagar úr Al-Anon, einn Alateen og einn AA félagi deila reynslu sinni, styrk og von. Fundinum lýkur á stuttu tónlistar atriði.
 
Kaffiveitingar verða að fundi loknum. Við viljum biðja félaga um að taka þátt í að koma með veitingar fyrir fundinn. Áhugasamir hafið samband við Árdísi (ardis(hjá)video24.is) eða Erlu (erlahuld(hjá)gmail.com)
 
Allir eru hjartanlega velkomnir,
kær kveðja Almannatengslanefnd.