Afmælisfundur Al-Anon samtakanna 18. nóvember 2012

40 ára afmæli
Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 18. nóvember í Grafarvogskirkju. Í ár er sérstakt tilefni til þess að fagna því samtökin verða 40 ára einmitt þennan dag.  Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir.  Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi deila reynslu, styrk og von.  Þá verður tónlistarflutningur og boðið uppá veitingar að fundi loknum.  Þarna er kærkomið tækifæri til að bjóða öðrum í fjölskyldunni eða vinum til að gleðjast með okkur, sem erum á bataleið Al-Anon.
 
Al-Anon félagar eru hvattir til að baka og leggja þannig sitt af mörkum svo við nærum ekki bara sálina heldur náum að næra líkamann líka.  Þeir, sem ná að baka, komi með góðgætið í Grafarvogskirkju klukkan hálf átta á sunnudagskvöldið.  Þetta er kjörið 12. spors starf.
 
Vonumst til að sjá ykkur á afmælisfundinum 18. nóvember.
 
 
Almannatengslanefnd Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi