Afmælisfundur Al-Anon á Íslandi!

Sunnudaginn 17. nóvember 2013
 
Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 17. nóvember í Grafarvogskirkju. Í ár verða samtökin verða 41 árs.  Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir.  Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi deila reynslu, styrk og von.  Þá verður tónlistarflutningur og boðið uppá veitingar að fundi loknum.  Þarna er kærkomið tækifæri til að bjóða öðrum í fjölskyldunni eða vinum til að gleðjast með okkur, sem erum á bataleið Al-Anon.
 
Al-Anon félagar eru hvattir til að baka og leggja þannig sitt af mörkum svo við nærum ekki bara sálina heldur náum að næra líkamann líka.  Þeir, sem ná að baka, komi með góðgætið í Grafarvogskirkju klukkan hálf átta á sunnudagskvöldið.  Þetta er kjörið 12. spors starf.
 
Vonumst til að sjá ykkur á afmælisfundinum 17. nóvember.
 
Með þökk,
Almannatengslanefnd Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi