Afmælisfundur – Al-Anon á Íslandi 50 ára

Reykjavík, 20. nóvember 2022
 Kæru Al-Anon félagar.
 
Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi, 50 ára afmæli, verður haldinn sunnudaginn 20. nóvember kl. 20:00 í Grafarvogskirkju. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir.
 
Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar og AA félagi deila reynslu, styrk og von. Lifandi tónlistarflutningur verður í lok fundarins. Bóksala á staðnum.
 
Þarna er kærkomið tækifæri til að bjóða öðrum í fjölskyldunni eða vinum til að gleðjast með okkur, sem erum á bataleið Al-Anon.
 
Sameiginlegt kaffihlaðborð verður eftir fundinn þar sem Al-Anon félagar koma sjálfir með eitthvað góðgæti til að leggja á borð. Félagar eru hvattir til að baka/kaupa eitthvað og leggja þannig sitt af mörkum. Þeir sem ná að baka eða kaupa eitthvað með kaffinu komi með góðgætið í Grafarvogskirkju klukkan hálf átta á sunnudagskvöldið.
 
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á stórafmælisfundinum þann 20. nóvember.
 
Ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna eru félagar vinsamlega beðnir að senda fyrirspurnir á netfang samtakanna, al-anon@al-anon.is.
 
Al-Anon kveðja,
Aðalþjónustunefnd