Afmælisfundur Al-Anon 20. nóvember 2016

Sunnudagur kl. 20 í Grafarvogskirkju
Kæru félagar,

Al-Anon samtökin voru stofnuð þann 18. nóvember 1972 og verða því 44 ára á þessu ári. Árlegur afmælisfundur Al-Anon fjölskyldudeildanna á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 20. nóvember í Grafarvogskirkju og við viljum hvetja þig til að mæta og gleðjast með okkur.
 
Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í u.þ.b. tvær klukkustundir. Þetta er opinn fundur þar sem Al-Anon félagar, Alateen félagi og AA félagi deila reynslu, styrk og von auk þess sem lifandi tónlistarflutningur verður í lok fundarins. Á fundinum verður einnig bóksala þar sem tekið verður á móti greiðslukortum. Þarna er kærkomið tækifæri til að bjóða öðrum í fjölskyldunni eða vinum til að gleðjast með okkur, sem erum á bataleið Al-Anon.
 
Hefð hefur skapast fyrir því að hafa sameiginlegt kaffihlaðborð í lok fundarins þar sem Al-Anon félagar koma sjálfir með eitthvað góðgæti til að leggja á borð. Félagar eru hvattir til að baka og leggja þannig sitt af mörkum. Þeir sem ná að baka eða kaupa eitthvað með kaffinu komi með góðgætið í Grafarvogskirkju klukkan hálf átta á sunnudagskvöldið. Þetta er kjörið 12. spors starf. Stöndum saman og gerum þetta að góðum og fjölmennum fundi.
 
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á afmælisfundinum þann 20. nóvember.
 
Með þökk, Almannatengslanefnd