Kaffiveitingar og gleði
Árbæjardeildin sem fundar á þriðjudögum kl. 21:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju heldur upp á 23ja ára afmæli deildarinnar næstkomandi þriðjudag 22. janúar. Gestaleiðari úr annarri deild mun deila reynslu sinni og eftir fundinn býður deildin upp á kaffiveitingar.
Fundurinn er opinn og eru Al-Anon félagar hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kveðja
Árbæjardeildin