Ég óska öllum gleðilegs árs með þökk fyrir það liðna og vona að þið séuð ekki með jólasíþreytu eins og ég. Ég óska hér með eftir net-pennavini. Ég er 59 ára gömul, búin að vera gift í tæp 40 ár og þar af hafa 20 ár verið edrú. Ég hef stundað Al-Anon í þessi 20 ár, með hvíldum þó. Ég hef aldrei farið í sporin skriflega eða með öðrum og núna langar mig til þess. Ég tel mig samt hafa Al-Anon mikið að þakka og held áfram að þjóna. T.d. er ég tengill núna og finnst það skemmtilegt. Ég á erfitt með að komast á fundi á veturna, bæði vegna heilsuleysis og veðurs. Ég kann ekki ennþá að fara inn á netfundina, en ég er viss um að ég á eftir að læra það. Ég er svo nýbúin að fá tölvu og er að læra á hana. Ég bíð spennt eftir að heyra frá einhverjum sem vill vera netsponsor fyrir mig eða netvinur eða vinkona. Sendu svarbréf til skrifstofunnar, netfangið er al-anon@al-anon.is og það verður áframsent til mín þaðan.
Bless bless,
Dísa