19. nóvember á Zoom
Svæðisfundur Reykjavíkursvæðis verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember 2020, frá kl. 17.00 – 18.00. Vegna sóttvarnaraðgerða verður haldinn fjarfundur á Zoom. Við vekjum athygli á að á fundinum fer fram kosning í þjónustu svæðisfulltrúa, varasvæðisfulltrúa og gjaldkera. Við hvetjum alla félaga til að mæta og gefa kost á sér í þjónustu, því þegar við tökum þátt í þjónustu eflum við eigin bata.
Hlekkur á fundinn: Svæðisfundur – Lykilorð: 2EMMDK
Lesa má um hlutverk svæðisfulltrúa, gjaldkera og svæðisfundar í Þjónustuhandbók Al-Anon samtakanna á Íslandi.
Við minnum að lokum á leiðbeiningar til að tengjast Zoom fjarfundum sem eru hér á heimasíðunni.
DAGSKRÁ SVÆÐISFUNDAR
- Fundur settur með æðruleysisbæninni.
- Fundarmenn kynna sig.
- Kosning fundarritara.
- Lesið upp úr „Einn dagur í einu í Al-Anon“, erfðavenjur og þjónustuhugtök.
- Hlutverk svæðisfundar kynnt.
- Fundargerð síðasta svæðisfundar lesin.
- Kosning gjaldkera.
- Kosning svæðisfulltrúa og varasvæðisfulltrúa.
- Skýrsla landsþjónusturáðstefnu
- Alþjóðafulltrúar kynna það sem fram kom á IAGSM-ráðstefnu 2020
- Önnur mál.
- Ákvörðun um næsta svæðisfund.
- Fundi slitið með æðruleysisbæninni.
Svæðisfulltrúi Reykjavíkursvæðis