Haust 2017
Svæðisfundur Reykjavíkur verður haldinn 17. október 2017 kl. 17:00 – 18:30 að Sundaborg 5 (gengið inn frá austurenda).
Allir félagar á Reykjavíkursvæðinu eru velkomnir á svæðisfundinn en aðeins deildarfulltrúar og varadeildarfulltrúar hafa atkvæðisrétt (hver deild hefur eitt atkvæði).
Á svæðisfundinum hafa deildirnar tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir og tillögur frá samviskufundum. Þær verða ræddar og sendar áfram á Landsþjónusturáðstefnuna 2018.
Á fundinum verða kosnir landsþjónustufulltrúar og varasvæðisfulltrúi Reykjavíkursvæðis.
Dagskrá
- Fundur settur með æðruleysisbæn.
- Fundarritari kosinn.
- Fundarmenn kynna sig.
- Lesið upp úr “Einn dagur í einu í Al-Anon”, erfðavenjurnar og þjónustuhugtökin.
- Lesið um Hlutverk Svæðisfundar.
- Fundargerð síðasta svæðisfundar 25. apríl 2017 lesin.
- Svæðisfulltrúi fjallar um mál svæðisins.
- Lesið um hlutverk svæðisfulltrúa og Landsþjónustufulltrúa.
- Kosning landsþjónustufulltrúa.
- Kosning varasvæðisfulltrúa.
- Önnur mál.
- Tillögur Reykjavíkursvæðis fyrir Landsþjónusturáðstefnu 2018.
- Dagsetning næsta fundar ákveðin.
- Fundi slitið með æðruleysisbæninni.
Kveðja,
Svæðisfulltrúi Reykjavíkur