12. og 13. september 2020
Kæru félagar
Landsþjónusturáðstefna Al-Anon 2020 sem halda átti í mars sl. var frestað vegna Covid 19.
Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 12. september n.k. kl. 9:30 – 16:00 og vinnusmiðja verður í framhaldi ráðstefnunnar sunnudaginn 13. september kl. 10:00 – 13:00 í Sjómannaheimilinu Örkinni Brautarholti 29 Reykjavík.
Yfirskrift ráðstefnunnar og vinnusmiðjunnar í ár er:
„Þjónustuhandbókin – hvernig starfar Al-Anon, hvert er hlutverk mitt?“
Tilgangur ráðstefnunnar er að styrkja Al-Anon starfið í landinu. Hún er aðalfundur nefnda Al-Anon þar sem þær greina frá starfinu í landsþjónustu samtakanna á undanförnu ári. Einnig eiga öll svæði þar kjörna fulltrúa sem greina frá starfi svæðanna og hafa atkvæðisrétt.
Ráðstefnan er stefnumótandi fyrir samtökin og hefur að leiðarljósi tólf erfðavenjur og tólf þjónustuhugtök Al-Anon.
Ráðstefnan er ekki opin en vinnusmiðjan daginn eftir, sunnudaginn 13. september kl. 10:00 – 13:00 er opin öllum félögum án endurgjalds. Vinnusmiðjan verður auglýst nánar síðar.
Með Al-Anon kveðju,
Ráðstefnunefnd
Ráðstefnunefnd