Vinnusmiðja Al-Anon

VINNUSMIÐJA  Al-Anon 2026 verður haldin sunnudaginn 08.mars  kl. 10:00 – 13:00 í Sjómannaheimilinu Örkinni Brautarholti 29, Reykjavík.

Yfirskrift: ”Nýliðinn“

Vinnusmiðjan er liður í því að efla vitund Al-Anon félaga um uppbyggingu og starf samtakanna, og er opin öllum Al-Anon félögum. 

Eftirfarandi er meðal umræðuefna:

·       Hvernig er nýliðamóttöku háttað í minni deild  ?

·      Eru nýliðafundir í minni deild ? Ef svo er, hvað eru þeir langir og hvaða efni er notast við til kynningar ?

·       Hef ég, eða mín deild, kynnt sér leiðarljós vegna nýliðafunda ?

·       Hvernig teljum við að sé best tekið á móti nýliðum ?

Í upphafi heyrum við reynslusögur nokkurra félaga. Síðan skipta þátttakendur sér í umræðuhópa og ræða ákveðin atriði. Að loknum umræðum í hópum kynna félagar úr hverjum hópi umræður hópsins.

 

Al-Anon félagar eru hvattir til að mæta á vinnusmiðjuna og leggja sitt af mörkum, bæði nýliðar og þeir sem hafa verið lengi í samtökunum, því reynsla allra er jafn mikilvæg.

 

Vinnusmiðjan er haldin í Sjómannaheimilinu Örkinni, Brautarholti 29 Reykjavík.

Ekki er innheimt þátttökugjald, en þakklætispotturinn verður á sínum stað. Boðið er uppá veitingar í kaffihléi um kl. 11:30. Gott er að hafa með sér skriffæri og pappír.