Ykkar reynsla gulli betri

Ágætu Al-Anon félagar!
 
Við höfum öll sögu að segja. Það styrkir batasamfélag okkar að heyra aðra deila reynslu sinni, styrk og von.
Á þessa síðu vantar íslenskar reynslusögur um sporin og sporavinnuna. Deilið bata ykkar með öðrum. Nánari upplýsingar má finna á Hlekknum undir > Efni óskast frá félögum.
 
Þetta nýja vefsetur Al-Anon á Íslandi er mikilvægt tólfta spor í þá veru að ná til fleiri aðstandenda sem þurfa á hjálp á halda.
Kannski er saga þín, reynsla af sporavinnunni, batagöngu þinni einmitt það sem einhver þarf á að halda einmitt núna. Réttu út hjálparhendi, gefðu öðrum von.
 

Yfirlýsing Al-Anon og Alateen: Megi það byrja hjá mér!

Þegar einhver, einvers staðar,

leitar eftir hjálp,
megi hönd Al-Anon og Alateen
ávallt vera til staðar

og  – megi það byrja hjá mér!